13.04.1965
Efri deild: 69. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2367 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)

Þinghlé

Á 69. fundi í Ed., 13. apríl, mælti forseti (SÓÓ):

Þá eru ekki fleiri mál á dagskrá þessa fundar: Vegna páskahátíðarinnar, sem í hönd fer, verður nú gert nokkurt hlé á fundum Alþingis. Þetta verður síðasti fundur hv. Ed. fyrir páska. Ég vil leyfa mér að óska utanbæjarþm. góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og ykkur öllum, hv. þdm., fjölskyldum ykkar og öllu starfsliði Alþingis óska ég gleðilegrar páskahátíðar. Megum við svo öll hittast heil að þinghléi loknu.