11.05.1965
Neðri deild: 90. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2369 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)

Starfslok deilda

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég þakka honum fyrir gott samstarf við okkur þm. á þessu þingi og góða og röggsamlega fundarstjórn. Ég óska honum og hans fjölskyldu alls hins bezta og bið hv. þdm. að taka undir óskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum sínum. — [Dm, risu úr sætum.]