08.05.1965
Neðri deild: 86. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í C-deild Alþingistíðinda. (2276)
33. mál, Vestfjarðaskip
Frsm. meiri hl. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Samgmn. hv. þd. hefur ekki orðið sammála um frv. það, sem hér liggur fyrir til 2. umr., það er frv. til l. um kaup og rekstur á Vestfjarðaskipi. Meiri hl. n. telur nauðsyn bera til umbóta á samgöngum á sjó við Vestfirði, en þar sem allur rekstur Skipaútgerðar ríkisins er í athugun, telur meiri hl. rétt að vísa málinu til ríkisstj. í trausti þess, að heildarendurskoðun strandferðanna verði lokið hið fyrsta. Minni hl. n. vill hins vegar, að frv. verði samþ. óbreytt.