09.02.1965
Neðri deild: 40. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í C-deild Alþingistíðinda. (2335)

123. mál, nauðungaruppboð

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta frv. stendur í nánu sambandi við það frv., sem nú var verið að afgreiða til 2. umr., og leyfi ég mér að leggja til, að það hljóti sams konar meðferð og það. Þó að það séu að formi til tvö mál, þá eru frv. samin af sömu aðilum og fer algerlega saman þeirra afgreiðsla.