30.03.1965
Neðri deild: 60. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í C-deild Alþingistíðinda. (2576)

164. mál, sala Þormóðsdals og Bringna

Flm. (Matthías Á. Mathiesen) :

Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 368 að flytja frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að selja Mosfellshreppi jarðirnar Þormóðsdal og Bringur. Eins og fram kemur í grg. frv. og bréfi oddvita Mosfellshrepps, er hér um að ræða skipulagsástæður, sem valda því, að hreppsnefndin óskar eftir þessu og gerir hann grein fyrir því í þessu bréfi sínu. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða meir um málið, en legg til að, að lokinni þessari umr. verði því vísað til hv. landbn.