03.03.1965
Sameinað þing: 28. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í D-deild Alþingistíðinda. (2640)

64. mál, skjólbelti

Frsm. (Jón Þorsteinsson) :

Herra forseti. Þessi till. fjallar um það, að Alþingi álykti að skora á ríkisstj. að undirbúa og leggja fyrir næsta reglulegt Alþ. frv. til l. um stuðning við kerfisbundna ræktun skjólbelta í landinu. Till. þessari var vísað til allshn., og n. aflaði sér umsagnar þriggja aðila um till., þ.e.a.s. skógræktarstjóra, Stéttarsambands bænda og landnámsstjóra. Allir þessir aðilar mæltu með samþykkt till. og að fengnum þessum umsögnum varð það niðurstaða í n. að mæla einróma með því, að þessi till. hljóti samþykki.