21.04.1965
Sameinað þing: 42. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í D-deild Alþingistíðinda. (3083)
149. mál, dráttarbraut á Siglufirði
Flm. (Jón Þorsteinsson) :
Herra forseti. Ég vil í upphafi leiðrétta þann misskilning, sem kom fram hjá hv. 3. þm. Norðurl. v., að þessi tillaga væri flutt að beiðni bæjarstjórnar Siglufjarðar. Ég hygg, að þegar þessi till. var samin, hafi þessi ályktun hafnarnefndarinnar, sem vitnað er í hér í grg., ekki verið komin til bæjarstjórnar, — ég hygg það. Ég hef að vísu ekki fylgzt með því, ég man ekki upp á dag, hvenær þessi till. var samin, en ég hafði þá ekki vitneskju um, að málið væri komið til bæjarstjórnarinnar, þannig að það er út af fyrir sig ekki rétt, að þessi till. sé annaðhvort flutt eftir beiðni bæjarstjórnarinnar eða bæjarstjórnarmeirihl. á Siglufirði.
Hins vegar voru forráðamenn bæjarfélagsins látnir vita um það, þegar þessi till. var lögð inn í þingið, en hún er ekki flutt eftir beiðni, heldur að frumkvæði okkar flm.
Mér þótti þetta gleðilegt, sem hv. 3. þm. Norðurl. v. sagði um það, að hann teldi, að þetta væri rangt hjá mér, að það væri ekki hægt að fá alla þm. kjördæmisins til þess að flytja þessa till., því að ég vil trúa þessum ummælum hans og tek þetta sem boðskap um það, að samþm. hans úr kjördæminu hafi tekið sinnaskiptum. Ég tek þetta þannig. Ég ætla ekki að fara að nefna dæmi hér, mér finnst það ekki viðeigandi, en ég veit ýmis dæmi þess, að það var útilokað að fá alla þm. kjördæmisins saman um till., þó að það væri ekki um neinn málefnalegan ágreining að ræða varðandi efni till. Og ég þekki þess nokkur dæmi, þó að ég vilji ekki fara að gera þau sérstaklega frekar að umtalsefni hér. En ég get t.d. bent á það, að hv. 2. þm. Norðurl. v. og hv. 5. þm. Norðurl. v. hafa flutt hér saman till., sem snerta kjördæmið, án þess að gefa mér kost á því að vera þar meðflm. og þetta hafa þó verið till., sem ég hef efnislega alveg verið samþykkur. En ég hef þrátt fyrir það talið, að þeim, sem hafa áhuga á einhverjum sérstökum málum og vilja flytja um það till., beri ekki endilega skylda til þess að láta samþm. úr sínu kjördæmi eiga kost á að gerast meðflutningsmenn, þó að það séu mál sem snerti kjördæmið. Ég hef ekki fundið neina ástæðu til þess, þó að slíkar till. hafi verið bornar fram, að standa hér upp og kvarta yfir því, að ég hafi ekki fengið að vera meðflm.