09.12.1964
Sameinað þing: 17. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í B-deild Alþingistíðinda. (335)

92. mál, fjáraukalög 1963

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1963 hefur verið lagt fyrir hv. Nd. og vísað til n. Að venju er svo lagt fram hér í sameinuðu þingi um leið frv. til fjáraukal. fyrir sama ár, og er það samið eftir till. yfirskoðunarmanna ríkisreikninga.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjvn.