14.12.1964
Sameinað þing: 19. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í B-deild Alþingistíðinda. (369)
1. mál, fjárlög 1965
Ágúst Þorvaldsson:
Herra forseti. Till. sú, sem ég ætlaði nú að mæla fyrir, er ekki enn þá komin úr prentun, en hún er við 14. gr. B, XIV. Það er nýr liður og hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta: „Til ungmenna- og átthagafélaga eða annarra aðila til að gera héraðakvikmyndir 25 þús. kr.“ Ég hef leyft mér að flytja þessa till. ásamt hv. 5. þm. Norðurl. e.
Við vitum það, að tímarnir breytast mjög óðfluga nú á okkar dögum. Lífsvenjur manna og störf, verkfæri og áhöld, allt er þetta stöðugum breytingum undirorpið og er að hverfa. Það, sem við notuðum á yngri árum, sem nú erum orðnir rosknir, það er að falla og hverfa í fyrnsku. Nýtt kemur svo í staðinn. Ýmsir menn skrifa þjóðhátta- og aldarfarslýsingar, og það er vitaskuld góðra gjalda vert, til þess að geyma og vernda sem bezt frá glötun sögu og minningar frá liðnum tíma. Gamall málsháttur segir, að sjón sé sögu ríkari. Nú hafa ýmis ungmennafélög og átthagafélög á síðustu árum lagt í það eða tekið sér það fyrir hendur að gera kvikmyndir af bæjum og bólstöðum í hinum ýmsu héruðum og af fólkinu, sem þar lifir og starfar, af vinnubrögðum þess og áhöldum, af skemmtunum þess og áhugamálum og af andlegum viðfangsefnum einnig, ekki síður en hinum verklegu. Ég veit um ýmis félög, sem vinna að þessu. Þar á meðal er samband ungmennafélaganna á Suðurlandi. Það hefur nú á undanförnum 2 árum unnið að þessu verki í sveitum sunnanlands, reynt að ná sem mestu á kvikmynd af fornum heimilisháttum og vinnubrögðum, sem nú eru að hverfa úr sögunni. En vitanlega eru alltaf að hverfa úr sögunni smátt og smátt ýmsir þjóðhættir, sem áður tíðkuðust, og nýir koma í staðinn. Ég hygg, að við vildum gjarnan eiga myndir, jafnvel þótt það væru ekki kvikmyndir, þá vildum gjarnan eiga myndir af lífi og störfum kynslóðanna í landi hér á liðnum öldum. En við eigum ekkert slíkt. Við verðum að styðjast við það litla, sem við eigum til skrifað af þjóðháttalýsingum frá fyrri tímum. Ég tel það eitt af menningarmálum okkar nú á tímum að stuðla að því að ná sem mestu á kvikmyndir af þessu, sem ég hef verið að tala um, og ég tel, að þetta starf, sem ég hef verið að lýsa, að ungmennafélög og átthagafélög ýmis vinna nú að, sé þjóðnytjaverk. Þess vegna höfum við hv. 5. þm. Norðurl. e. tekið okkur til og flutt þessa litlu till., sem ég nú hef mælt fyrir. Ég geri ráð fyrir því, að við látum till. ekki koma undir atkv. nú við 2. umr., heldur geymum okkur það til 3. umr. í þeirri von, að fjvn. taki þetta mál til athugunar, og ég vil vonast til þess, að hún vilji gera þetta að sínu máli og leggja til, að þessi litla upphæð, sem farið er fram á, verði tekin inn á fjárlög.