08.02.1965
Efri deild: 40. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (425)
121. mál, tollskrá o.fl.
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þetta frv. er flutt að ósk Sambands íslenzkra fiskframleiðenda, og það gerir ráð fyrir því, að lækkaður sé tollur á flökunarvélum og hausskurðarvélum til vinnslu á fiski úr 35% í 10%.
Ríkisstj. hefur haft til athugunar um nokkurt skeið að lækka almennt tolla á vélum, sérstaklega vélum og tækjum til vinnslu útflutningsafurða, svo og öðrum vélum og tækjum þess iðnaðar, sem framleiðir vörur og veitir þjónustu fyrir innlendan markað. Þeirri athugun er ekki lokið enn. En vegna þess að inn í hana hefur spunnizt víðtækari endurskoðun tollskrárinnar en upphaflega var ráðgert, þykir þó rétt að flytja þetta frv. sérstaklega, því að vertíð er hafin og atvinnurekendur hafa lagt áherzlu á, að þessi breyting taki gildi nú þegar. Þess vegna er þetta frv., þó að hið almenna frv. um lækkun á vélatollum sé ekki tilbúið, flutt nú, til þess að unnt sé að lækka aðflutningsgjald á vélum þessum nú þegar. Það er ósk ríkisstj., að þetta frv. fái greiða göngu í gegnum þingið. Ég legg til, að frv. gangi til 2. umr. og hv. fjhn.