23.02.1965
Neðri deild: 45. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í B-deild Alþingistíðinda. (437)

121. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. (Davíð Ólafsson):

Herra forseti. Þetta mál var, sem kunnugt er, flutt af hæstv. ríkisstj. í Ed. og er þaðan komið með þeirri breytingu, sem þar var gerð á frv., að bætt var við upptalninguna undir lið 0.5: flatningsvélar. Fjhn. hefur fjallað um þetta mál og orðið sammála um að leggja til, að frv. í núverandi mynd verði samþ. óbreytt.