02.11.1964
Neðri deild: 9. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 643 í B-deild Alþingistíðinda. (445)

4. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Jónas Pétursson:

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir til 2. umr., er um staðfestingu á brbl., sem gefin voru út á s.l. hausti, um breyt. á l. um framleiðsluráð landbúnaðarins.

Við 1. umr. málsins hér í hv. d. fylgdi landbrh. því úr hlaði og gerði grein fyrir þeim rökum, sem til þess lágu, að þessi brbl. voru sett. Ég sé því ekki ástæðu til að rekja það frekar nú, en eins og fram kemur í nál. á þskj. 41 frá landbn. d., hefur hún orðið sammála um að mæla með því, að frv. þetta verði samþ. Þó hafa tveir nefndarmanna, Ágúst Þorvaldsson og Hannibal Valdimarsson, skrifað undir nál. með fyrirvara.