10.12.1964
Efri deild: 29. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (461)

52. mál, meðferð einkamála í héraði

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, hefur allshn. yfirfarið, svo sem fram kemur á þskj. 136, og mælir einróma með því, að frv. verði samþ. Hér er um smávægilega breytingu að ræða varðandi þóknun til stefnuvotta, svo sem fram kemur í aths. við frv. Allshn., eins og ég sagði áðan, mælir einróma með, að frv. verði samþ. óbreytt.