23.03.1965
Neðri deild: 58. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (629)

142. mál, nafnskírteini

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Frv. þessu um nafnskírteini fylgir mjög ýtarleg grg. Ég gerði allrækilega grein fyrir málinu í hv. Ed. og vil vísa til þess. Í Ed. var alger einhugur um málið, og það var samþykkt þar óbreytt.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.