12.04.1965
Efri deild: 68. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 871 í B-deild Alþingistíðinda. (739)
70. mál, búfjárrækt
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Hv. Nd. hefur gert nokkrar breytingar á frv. til búfjárræktarl., eins og sjá má á þskj. 386. Breytingarnar eru við 4., 6., 29., 32. og 35. gr., og þarf ég ekki að lýsa þessum brtt., þar sem þær liggja fyrir. Ég hefði viljað óska eftir því, að hv. Ed. sæi sér fært að samþykkja frv., eins og það er nú. Þessar brtt. eru ekki veigamiklar og ættu ekki að skemma frv., þótt það væri lögfest með þeim hætti.