09.04.1965
Efri deild: 65. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 938 í B-deild Alþingistíðinda. (860)

172. mál, lán fyrir Flugfélag Íslands

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Með frv. því, sem hér liggur fyrir, er farið fram á heimild til handa hæstv. ríkisstj. til þess að ábyrgjast lán fyrir Flugfélag Íslands til kaupa á flugvél, sem aðallega væri notuð á flugleiðum innanlands. Það mun hafa verið venja, þegar fram á slíkar beiðnir hefur verið farið af hálfu flugfélaganna, þá hefur verið við því orðið, og eins og nál. á þskj. 435 ber með sér, mælir fjhn. einróma með því, að frv. verði samþ.