30.04.1966
Efri deild: 76. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1329 í B-deild Alþingistíðinda. (1139)

127. mál, umferðarlög

Pétur Pétursson:

Herra forseti. Þetta frv. hefur verið sent aftur frá hv. Nd. vegna einnar breyt., sem þar var gerð á því, en það er 7. gr., þar sem ræðir um, að dómsmrh. geti ákveðið breytilegan hámarkshraða. Allshn. þessarar hv. d. hélt fund um málið í gær og leggur einróma til, að það verði samþ. með þessari áorðnu breytingu.