29.04.1966
Efri deild: 75. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1348 í B-deild Alþingistíðinda. (1168)
171. mál, vernd barna og ungmenna
Alfreð Gíslason:
Herra forseti. Ég vil aðeins mælast til þess við hæstv. forseta, að hann fresti þessari umr. nú, og ég vil fara þess á leit við hv. formann menntmn., að n. taki þessar till. til athugunar nú. Slíkt þarf ekki út af fyrir sig að tefja málið sem neinu nemur, um einn dag í þessari d. eða svo.