20.04.1966
Neðri deild: 74. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1714 í B-deild Alþingistíðinda. (1222)

177. mál, álbræðsla við Straumsvík

Björn Pálsson:

Herra forseti. Ég lít á dagskrártill. þessa sem tilraun til að ná hagkvæmari samningum við Swiss Alumínium Ltd., en ekki sem yfirlýsingu um að vera á móti nýtingu straumvatna okkar með aðstoð erlends fjármagns, ef hagkvæmir samningar lakast. Hagstæðari samningar nást ekki nema stungið sé við fótum, því að dyr opnast eigi, nema ýtt sé á hurðina. Ég segi því já við dagskrártillögunni.