26.04.1966
Neðri deild: 78. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2393 í B-deild Alþingistíðinda. (1556)
152. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Björn Pálsson:
Herra forseti. Ég tel það móðgun við íslenzka útvegsmenn að gera þessa lánastofnun að nokkurs konar undirlægju hjá þremur bönkum í landinu og ég tel, að það hafi verið gengið fram hjá vilja L.Í.Ú. og framkvæmdastjóra Fiskveiðasjóðs með flest af því, sem þeir lögðu til, að breytt yrði í þessu frv., og ég tel það enn fremur ósæmandi fyrir Alþ. Íslendinga að treysta sér ekki til að taka ákvörðun um vexti eða lánskjör í þessari lánastofnun og segi því nei við frv.