21.10.1965
Efri deild: 5. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2404 í B-deild Alþingistíðinda. (1587)

7. mál, atvinnuréttindi vélstjóra á íslenskum skipum

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er samið af mþn., sem hæstv. menntmrh. skipaði í febrúarmánuði 1964 og nú hefur lokið störfum. Í n. áttu sæti Jón Þorsteinsson alþm., Gunnar Bjarnason skólastjóri, tilnefndur af Vélskólanum í Reykjavík, Guðmundur Pétursson vélstjóri, tilnefndur af Vélstjórafélagi Íslands, Jón S. Pétursson, tilnefndur af Mótorvélstjórafélagi Íslands, og Magnús J. Magnússon forstöðumaður mótornámskeiðanna, tilnefndur af Fiskifélagi Íslands. Í stað Jóns S. Péturssonar tók varamaður hans, Halldór Guðbjartsson vélstjóri, sæti í n. og starfaði í henni, þar til hún lauk störfum. Í tímabundinni fjarveru Guðmundar Péturssonar tvisvar sinnum starfaði í hans stað Örn Steinsson vélstjóri. N. vann mjög ötullega og vandlega starf sitt, og er sérstök ástæða til að færa henni þakkir fyrir störfin, og er það gert hér með.

Þetta frv. er eins konar afleiðing af aðalstarfi n., sem var að semja frv. til l. um vélstjóranám, sem hæstv. menntmrh. hefur einnig lagt hér fram á Alþingi. Í samráði við siglingamrn. samdi n. einnig það frv., sem hér er til umr. nú, og leitaði að lokinni fyrstu samningu frv. álits ýmissa þeirra samtaka, sem málið er skyldast, s.s. A.S.Í., skipaskoðunarstjóra, Landssambands ísl. útvegsmanna, Fiskifélags Íslands, Vélstjórafélags Íslands, Mótorvélstjórafélags Íslands og loks skráningarfulltrúans í Rvk. Enn fremur til Vinnuveitendafélags Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaga. Frá nokkrum þessara aðila bárust svör og ábendingar um breytingar. Nokkrar af þessum aths. þessara aðila kveðst n. hafa tekið til greina, en aðrar taldi n. sér ekki fært að taka undir. Eðlilegt verður því að telja, að þingnefnd sú, sem frv. þetta fær nú til meðferðar, kynni sér hjá undirbúningsnefnd málsins, í hverju þær ábendingar, sem n. treysti sér ekki að taka inn í frv., eru sérstaklega fólgnar. Enn fremur leyfi ég mér að benda hv. þingnefnd á, að nauðsynlegur kynni að vera samanburður á þessu frv. og þeirri heimild, sem samþ. var hér s.l. vetur, um að veita mætti við styttri farþega- og vöruflutningasiglingar undanþágur um fjölda yfirmanna þar á meðal vélstjóra, og þannig að tryggja sem bezt samræmi í lagasetningunni um réttindi og skyldur í þessum efnum.

Höfuðbreytingu á þessu frv. frá gildandi I. verður að telja þá stigbreytingu réttinda, sem fást eftir próf í hverju hinna fjögurra námskeiða Vélskólans, eins og þegar er kunnugt af skýringum með því frv. Hin tvenns konar réttindi mótorvélstjóranámskeiðs á vegum Fiskifélags Íslands verða samkv. frv. lögð niður, og reynslutími er styttur. Þess í stað verða gefin réttindi eftir próf í hverju hinna 4 námskeiða, sem frv. þetta og frv. um Vélskólann gera ráð fyrir, eða eftir hvern vetur. Það skilyrði við upptöku í Vélskólann að hlutaðeigandi hafi lokið iðnnámi í járnsmíði er og einnig fellt niður með ákvæðum frv. Þó verður sá vélstjóri, sem fær hæstu réttindi, áður að hafa lokið sveinsprófi í vélvirkjun, og þó má hann einnig ljúka því prófi eftir að hafa lokið vélskólanáminu.

Um þegar áunnin réttindi vísast til 16. gr. frv., en hún staðfestir hugmyndir undirbúningsnefndarinnar um, að enginn einstaklingur, sem samkv. gildandi l. hefur tiltekin réttindi, lækki í sessi. Lægstu og hæstu réttindi hækka að mun, og viðmiðun í þeim efnum er ekki lengur vélategund — það er, hvort vélin er gufuvél eða mótorvél eða tonnafjöldi skips, eins og áður var — heldur hestaflafjöldi eða orka vélarinnar í hvaða skipi, sem vélin annars er, og hvert sem verkefni skipsins er. Skylt er þó að taka fram, að allur samanburður á ákvæðum þessa frv. og allur samanburður á ákvæðum þessa frv. og gildandi l. er mjög erfiður, því að með frv. þessu er aðgreining gerð skýr á milli þriggja skipategunda eftir verkefni þeirra, þ.e. fiskiskip, flutningaskip og farþegaskip. Núgildandi l. frá 1946 með breytingum síðar eru hins vegar grundvölluð eftir vélategund í tvo flokka, mótorskip og gufuskip. Þar eru þó ótal undantekningar og frávik, sem of langt mál og flókið yrði upp að telja.

Eimskipum og gufuskipum er nú sem óðast að fækka, án þess að sjálf skipin fari úr umferð. Í fjölmörgum eldri gufuskipanna hefur verið skipt um vélar og mótor- eða dísilvélar settar í stað hinna eldri, auk þess sem öll endurnýjun flotans er með mótorvélum. Með þessar staðreyndir í huga væri fjarstæða að viðhalda hinni eldri viðmiðun um sjálfa vélategundina, þegar um er að ræða flokkun á atvinnuréttindum. Við þessa ákvörðun sína hafði n. hliðsjón af reglum um atvinnuréttindi vélstjóra hjá Dönum og Norðmönnum.

Reglur þessa frv. um lágmarksfjölda vélstjóra eru ekki mikið breyttar frá núgildandi l., þó er yfirleitt um lækkun að ræða á skipum með undir 4000 hestafla vélar. Umtalsverðar breytingar eru hins vegar gerðar á ákvæðum um starfstíma og siglingatíma, og er meginstefnan í þá átt að veita réttindi eftir skemmri starfstíma en áður við allar aflminni vélar. Því hærra námsstigi sem vélstjóri hefur lokið, þeim mun fljótari er hann að vinna sér inn réttindi til yfirvélstjórnar við sömu vélastærð.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða frekara um einstök ákvæði frv., þar sem mjög greinargóðar skýringar fylgja því ásamt aths. um einstakar gr. þess. Herra forseti. Ég geri það að till. minni, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.