29.04.1966
Efri deild: 75. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2441 í B-deild Alþingistíðinda. (1647)
195. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn
Frsm. meiri hl. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Það geta fleiri en hæstv. ráðherrar gefið yfirlýsingar, þó að yfirlýsingar annarra hafi vitanlega ekki sama gildi. Af því að ég hef verið þátttakandi í því að prófa, um hvað getur samizt milli Johns Manville og Íslendinga í þessu kísilgúrverksmiðjumáli, þá sé ég ástæðu til að segja frá því, að það hefur verið ákveðið og hreinlega fram tekið, að í þessu máli yrðu félögin að lúta algjörlega íslenzkum l., og ég veit ekki betur en það væri hreinlega yfirlýst af fulltrúum Johns Manville, að þeir féllu frá því að gera kröfur um erlendan gerðardóm, sem þeir að vísu höfðu uppi, enda höfðu þeir fréttir af öðru máli, sem hér hefur verið í umr.
Ég finn nú ekki betur en því miður hafi þarna slegizt saman á vissan hátt þræðir tveggja mála, orðið samsláttur og nokkurs konar straumrof að því er snertir yfirlýsingar af hálfu hæstv. ríkisstj. Mér dettur samt ekki í hug að halda, að hæstv. ríkisstj. fari að óska eftir því, að Johns Manville fái inn í samninginn ákvæði um erlendan dómstól í málefnum félaganna. Mér dettur ekki í hug að ætla það. Og þess vegna læt ég þessi straumrof ekkert koma við mig og tel rökst. dagskrá fyrir mitt leyti óþarfa og mun greiða atkv. á móti henni og fylgja frv., af því að ég veit svo gjörsamlega örugglega, að hér er ekki um það að ræða, sem ágreiningi virðist ætla að valda. Það er alls ekki um það ágreiningsefni að ræða í samningunum.