22.04.1966
Efri deild: 67. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2516 í B-deild Alþingistíðinda. (1906)

172. mál, sala eyðijarðarinnar Örlygsstaða í Helgafellssveit

Frsm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Við l. umr. þessa máls gerði ég grein fyrir kaupum þessarar jarðar, og landbn. hefur einnig leitað umsagnar jarðeignadeildar ríkisins, sem mælir með sölu jarðarinnar, og n. mælir einróma með samþykkt þessa frv., og legg ég því til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 3. umr.