02.05.1966
Efri deild: 78. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2556 í B-deild Alþingistíðinda. (2040)

179. mál, sala jarðarinnar Gufuskála í Gerðahreppi

Bjartmar Guðmundsson:

Herra forseti. Frsm. þessa máls fyrir hönd landbn. er skráður Ragnar Jónsson, sem ekki er hér viðstaddur, og hef ég verið beðinn að lýsa áliti n. Ég hef kynnt mér efni þessa máls lítils háttar og veit, að frv. hefur fengið venjulega meðferð í Nd. og síðar í Ed. Hvorug nefndin hefur haft nokkuð við söluna að athuga. Það stendur svipað á með sölu þessarar jarðar og margra annarra, sem samþ. hefur verið að leyfa sölu á hér á hv. Alþ. í vetur og áður og sé ég enga ástæðu til að hindra það, að salan fari fram og mæli því með sölunni.