02.05.1966
Sameinað þing: 43. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2577 í B-deild Alþingistíðinda. (2076)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (BF):

Umræðan fer þannig fram í kvöld, að hver flokkur fær 50 mínútna ræðutíma, sem skiptist í tvær umferðir, hin fyrri 25–30 mín., en hin síðari 20–25 mín. Röð flokkanna í báðum umferðum verður þessi: Alþb., Sjálfstfl., Framsfl. og Alþfl. Ræðumenn verða fyrir Alþb. í fyrri umferð Hannibal Valdimarsson og Ragnar Arnalds, í síðari umferð Gils Guðmundsson, fyrir Sjálfstfl. í fyrri umferð Bjarni Benediktsson og í síðari umferð Óskar E. Levy og Sigurður Bjarnason, fyrir Framsfl. í fyrri umferð Eysteinn Jónsson og Sigurvin Einarsson, í síðari umferð Ágúst Þorvaldsson og Ingvar Gíslason, fyrir Alþfl. í fyrri umferð Emil Jónsson og í síðari umferð Jón Þorsteinsson.

Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls Hannibal Valdimarsson og talar fyrir hönd Alþb.