27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2787 í B-deild Alþingistíðinda. (2143)

Framkvæmda- og fjáröflunaráætlun 1966

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Þessi skýrsla, sem hæstv. fjmrh. hefur flutt, gæti gefið tilefni til þess, að rætt væri um einstaka þætti í þjóðarbúskapnum og þjóðarbúskapinn í heild og stefnu hæstv. ríkisstj. og framkvæmdir hennar, en vegna þess að framundan eru á næstu dögum almennar umr. einmitt um þessi efni, útvarpsumr., sé ég ekki ástæðu til þess að ræða þessa skýrslu hæstv. ráðh. nú hér, enda þótt ég að sjálfsögðu mundi hafa gert aths. við ýmislegt, sem þarna kom fram, ef ekki væri svona ástatt. Ég mun því ekki ræða skýrsluna.