28.03.1966
Neðri deild: 60. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2815 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 26. marz 1966.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 136. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara fram á, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.

Davíð Ólafsson,

6. landsk. þm.

Til forseta neðri deildar.“

Ragnar Jónsson hefur áður átt sæti á Alþ. og hefur kjörbréf hans verið rannsakað. Tekur hann því sæti Davíðs Ólafssonar, hv. 6. landsk. þm., í fjarveru hans.