31.03.1966
Sameinað þing: 35. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2815 í B-deild Alþingistíðinda. (2180)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 30. marz 1966.

Hermann Jónasson, 1. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ., að óska þess, að I. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Bjarni Guðbjörnsson bankaútibússtjóri á Ísafirði, taki sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Ó. Ólafsson.

forseti Ed.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggur kjörbréf Bjarna Guðbjörnssonar bankaútibússtjóra, og leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. —