13.04.1966
Sameinað þing: 36. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2816 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík. 13. apríl 1966. Halldór Ásgrímsson, 2. þm. Austf., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstakra anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að fara fram á, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Vilhjálmur Hjálmarsson bóndi, Brekku, Mjóafirði, taki sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Vilhjálmur Hjálmarsson bóndi, Brekku. hefur áður átt sæti á þinginu á þessu kjörtímabili og rannsókn farið fram á kjörbréfi hans. Þarf því ekki að skoða það að þessu sinni, og býð ég hann velkominn til þingstarfa.