27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2818 í B-deild Alþingistíðinda. (2189)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 27. apríl 1966.

Halldór E. Sigurðsson, 3. þm. Vesturl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstakra anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Gunnar Guðbjartsson bóndi á Hjarðarfelli, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Gunnar Guðbjartsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og þarf því ekki að þessu sinni að fara fram rannsókn á kjörbréfi hans. Býð ég hann velkominn til þingstarfa.