05.04.1966
Efri deild: 61. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2823 í B-deild Alþingistíðinda. (2211)

Álbræðslunefnd

Forseti (SÓÓ):

Fram er komin í Nd. till. um, að sérstök n. verði kosin þar til að fjalla um frv. til í. um lagagildi samnings milli ríkisstj. Íslands og Swiss Aluminium Ltd., um álbræðslu við Straumsvík. Samkomulag er um það milli þingflokka, að jafnstór n., kosin í Ed., myndi samvinnunefnd um málið með neðrideildarnefndinni. Þar sem gert er ráð fyrir, að málinu verði í dag vísað til nefndar í Nd., er lagt til, að deildin kjósi nú þegar jafnstóra n. samkv. 9. málsgr. 16. gr. þingskapa.

Ef enginn mælir því í gegn, skoðast það samþykkt. Ég vil því biðja um lista.