17.12.1965
Sameinað þing: 24. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (2235)

Þingsetning

forseti (BF):

Það er nú komið að því, að störfum Alþingis verði frestað um sinn vegna jólahátíðarinnar og áramótanna. Ég óska öllum hv. þm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýja árinu. Ég þakka þeim öllum samveruna og góða samvinnu á árinu, sem er senn á enda. Utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu, og ég óska þess, að við megum öll hittast hér heil, þegar þing verður kvatt saman á ný. Skrifstofustjóra og öðru starfsfólki Alþingis vil ég einnig óska gleðilegra jóla og farsæls nýárs og þakka þeim fyrir vel unnin störf og ánægjulega samvinnu.