04.05.1966
Efri deild: 84. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2832 í B-deild Alþingistíðinda. (2247)

Starfslok deilda

Forseti (SÓÓ):

Ég vil þakka hv. l. þm. Norðurl. e. fyrir hans hlýju orð í minn garð og minnar fjölskyldu og ég vil einnig þakka hv. þdm. fyrir að taka undir þær hlýju óskir hans og góðu orð. Ég vil endurtaka óskir mínar til ykkar allra um gleðilegt sumar og að við megum öll hittast heil að hausti, þegar þing hefst að nýju. — Fundinum er slitið.