05.05.1966
Sameinað þing: 48. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2835 í B-deild Alþingistíðinda. (2253)

Þinglausnir

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir árnaðaróskir hans í garð alþm. Ég tel mig muni mæla þar fyrir munn allra hv. alþm., þegar ég þakka hæstv. forseta fyrir mjög góða samvinnu um störf sameinaðs Alþingis. Ég leyfi mér að færa hæstv. forseta heillaóskir og hans fjölskyldu og láta í ljós þá von, að við eigum eftir að sjá hann hér heilan á húfi, þegar við komum saman aftur næsta haust. Og ég bið þingheim að gera þessi orð mín að sínum með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.)