05.05.1966
Sameinað þing: 48. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2835 í B-deild Alþingistíðinda. (2255)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég hef í dag gefið út svofellt forsetabréf um þinglausnir:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 86. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag, fimmtudaginn 5. maí 1966.

Gjört í Reykjavík, 5. maí 1966.

Ásgeir Asgeirsson,

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkv. þessu bréfi, sem ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið. Ég óska þm. velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþm. að minnast fósturjarðarinnar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp, og forsrh., Bjarni Benediktsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þm. undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.