20.04.1966
Neðri deild: 74. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í C-deild Alþingistíðinda. (2598)

193. mál, afhending prestssetursjarðar

Flm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti.

Ástæðurnar til þess, að þetta frv. er lagt fram, eru skýrðar f grg. frv., og leyfi ég mér að vísa til þeirra. Jafnframt leyfi ég mér fyrir hönd okkar flm. að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og til hv. menntmn., og vildi ég fyrir okkar hönd mælast til þess við hv. n., að hún greiði fyrir því, að þetta mál geti orðið samferða öðrum síðbúnum þingmálum gegnum þingið.