07.12.1965
Efri deild: 24. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í C-deild Alþingistíðinda. (2615)
79. mál, stýrimannaskóli í Vestmannaeyjum
Flm. (Helgi Bergs):
Herra forseti. Á þskj. 99 hef ég leyft mér að flytja frv. til l. um breyt. á l. nr. 73 frá 1964, um stýrimannaskóla í Vestmannaeyjum. Þetta frv. felur í sér þá breyt. á l., að ríkissjóður greiði stofnkostnað og rekstrarkostnað skólans í stað bæjarsjóðs Vestmannaeyja.
Á síðasta þingi voru samþ. þessi l., sem hér er lagt til að breyta með þessum hætti, og það var þá full samstaða um það á hv. Alþ., að eðlilegt væri, að sjómannaskóli til fiskimannaprófs hins meira væri staðsettur í Vestmannaeyjum. Á hinn bóginn var ekki samstaða um þau atriði þeirra l., sem lúta að kostnaði við skólann. Brtt., sem ég flutti og stefndi í þá átt, sem þetta frv. gerir, voru felldar. En rökstuðningur minn fyrir þeim brtt. þá var sá, að mér þótti óeðlilegt og þykir enn, að ríkið skjóti sér undan kostnaði við þennan þátt sjómannafræðslunnar með því að koma honum yfir á bæjarsjóð Vestmannaeyja.
Nú hefur skólinn starfað eitt fullt ár og raunar nokkru betur. Þann 8. maí s.l. útskrifuðust frá skólanum 15 nemendur með fiskimannapróf hið meira. Það voru gerðar þar sams konar prófkröfur og gerðar eru við stýrimannaskólann í Reykjavík og dómendur að nokkru leyti einnig þeir sömu. Meðaleinkunn hinna útskrifuðu námsmanna var mjög há, 6.76. 3 af þessum 15 útskrifuðust með ágætiseinkunn, og virðist því, að skólinn hafi sjálfur staðizt sitt próf. Mér þykir þess vegna rétt með flutningi þessa frv. að kanna það, hvort nú sé ekki orðinn meiri hl. fyrir því á hv. Alþ., að ríkið taki að sér kostnað af rekstri þessa skóla, eins og af öðrum þáttum sjómannafræðslunnar. Við skólann í Vestmannaeyjum starfa auk skólastjóra 10 kennarar, flestir eru það stundakennarar, sem hafa önnur störf í Vestmannaeyjum. En það hefur, sem betur fer, reynzt auðvelt að tryggja góða kennslukrafta, enda ekki annars staðar frekar ástæða til að vænta þeirra en í þessari stærstu verstöð landsins. Samkv. reikningum bæjarsjóðs Vestmannaeyja um stofnkostnað skólans mun hann hafa numið tæpum 700 þús. og rekstrarkostnaður fyrsta heila starfsárið milli 750 og 800 þús. kr.
Þetta frv. miðar eingöngu að því að breyta þessu eina atriði, að ríkissjóður í stað bæjarsjóðs greiði kostnað við skólann. Ég hef ekki talið rétt að blanda inn í það öðrum atriðum, þó að mér sé fyllilega ljóst, að það frv., sem liggur fyrir um breyt. á námsskrá stýrimannaskólans í Reykjavík, geti gefið tilefni til þess, að einhver frekari endurskoðun á þessum l. fari fram, en ég hef ekki talið rétt að blanda því saman við þetta atriði, heldur felur þetta frv., sem hér liggur fyrir, í sér þetta eitt og ekki annað.
Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.