27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í D-deild Alþingistíðinda. (2716)

64. mál, klak- og eldisstöð fyrir laxfiska

Frsm. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Þetta mál var flutt snemma á þingtímanum af þm. úr Norðurl. e. Málinu var síðan vísað til fjvn., sem hefur rætt till. á nokkrum fundum sínum, m.a. haft samráð við veiðimálastjóra um málið, og varð niðurstaðan í n. að vera efnislega sammála þessari till., þó þannig, að tillgr. yrði breytt eins og segir á þskj. 588. Fjvn. leggur til, að málið verði afgr. með þeim breytingum, sem þar greinir.