20.10.1965
Sameinað þing: 6. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í D-deild Alþingistíðinda. (3046)

16. mál, tannlæknadeild háskólans

Fyrirspyrjandi (Alfreð Gíslason):

Herra forseti. Á þskj. 16 geri ég fsp. til hæstv. menntmrh. varðandi tannlæknadeild háskólans, en eins og öllum er kunnugt, var tannlæknadeildinni að þessu sinni lokað fyrir nýjum nemendum. Ég tel ekki ástæðu til að ræða einstaka liði þessara spurninga, en vænti þess, að hæstv. ráðh. veiti svör nú, og mun ég svo taka til máls á eftir.