17.11.1965
Sameinað þing: 12. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í D-deild Alþingistíðinda. (3122)

206. mál, sérleyfissjóður og umferðarmiðstöð

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði. Ég get tekið undir það, sem Im. fyrirspyrjandi sagði, að sérleyfishafar hefðu vitanlega vel getað komið til greina með það að hafa veitingaaðstöðu í umferðarmiðstöðinni. En eins og ég sagði áðan, var þessi aðstaða auglýst, og ég hef ekki orðið var við neina umsókn frá sérleyfishöfum. Það er þess vegna, sem það hefur ekki komið til greina að leigja þeim.