17.11.1965
Sameinað þing: 12. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í D-deild Alþingistíðinda. (3127)
208. mál, sjónvarpsmál
Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. svörin við fsp. minni. Þau voru fróðleg á ýmsa lund, bæði um það, sem beinlínis kom fram í svörunum, og eins um það, sem ráðh. hafði ýmist mjög fá orð um eða þagði um algerlega.
Ég vil aðeins minnast á tvö atriði af því, sem fram kom í svari hæstv. ráðh. Fyrra atriðið er það, að í sambandi við fsp. mína um það, hvort eigi ekki að setja löggjöf um þessa miklu og dýru og mikilsverðu starfsemi, er því þannig svarað til nú eins og raunar áður, að bent er á lög um Ríkisútvarpið og orðað á þá leið, að talið sé, að í einhverri lagagr. þar felist heimild til sjónvarpsrekstrar. Ég verð að segja, að mér finnst þessi vinnubrögð mjög óvenjuleg, svo að ekki sé meira sagt, og ég vil ítreka það, sem ég áðan sagði, að Alþ. hefur með löggjöf oft fjallað um minna mál en stofnun og rekstur fyrirtækis eða stofnunar, þar sem um er að tefla fjölda starfsmanna þegar í upphafi og tugi og jafnvel hundruð millj. í stofnkostnað og tugi millj. í rekstrarkostnað.
Hitt atriðið, sem ég vildi aðeins nefna, er það, að hæstv. ráðh. svaraði því stutt og laggott í lok svarsins, að hæstv. ríkisstj. hefði enga afstöðu tekið til þess atriðis, hvort heimila eigi áfram starfsemi Keflavíkursjónvarpsins á sama hátt eins og verið hefur. Það kemur sem sagt í ljós, að um þetta hefur ríkisstj. enga ákvörðun tekið. Ég verð að segja það, að mér finnst, að ef hæstv. ríkisstj. ætlar að gera eitthvað í því máli, sé margra hluta vegna fyllilega tími til þess kominn að gera það nú, þegar mjög liður að þeim tíma, að íslenzkur sjónvarpsrekstur á að hefjast. Og ég verð að segja það, að sú skoðun, sem hæstv. menntmrh. hefur sett fram í þessu máli og ég lýsti hér áðan, virðist annað tveggja ekki hafa verið til umr. enn þá innan ríkisstj. eða hæstv. ráðh. hefur orðið þar í minni hluta með sína skoðun. Ég skora á hann að skýra frá því, hvort þetta mál hefur verið rætt innan ríkisstj. og hvort hann hefur orðíð þar í minni hl. með skoðun sína.