24.11.1965
Sameinað þing: 13. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í D-deild Alþingistíðinda. (3139)
209. mál, Lánasjóður sveitarfélaga
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Á þingi, sem haldið var á vegum íslenzkra sveitarstjórna sumarið 1962, mun það hafa verið, flutti þáv. fjmrh., sem þá fór með sveitarstjórnarmál, Gunnar Thoroddsen, ræðu, þar sem hann boðaði, að hann mundi beita sér fyrir því, að sett yrði löggjöf um lánasjóð sveitarfélaga eða banka fyrir þau. Ég held, að engu máli, sem fram kom á því þingi, hafi verið jafnvel tekið, því beinlínis fagnað, þegar ráðh. flutti þennan boðskap sinn í ræðu þeirri, þegar hann ávarpaði þingið í upphafi þess. Hann var þá búinn að skipa n. til þess að vinna að framkvæmd þessa máls. Þessi n. skilaði álíti til ráðh., og seint á þinginu í fyrravetur var þetta frv. lagt fram hér á hv. Alþ. Áður en það var lagt fram hér á hv. Alþ., átti ráðh. tal við nokkra menn úr stjórnarandstöðuflokkunum til þess m.a. að tryggja það, að málið næði fram að ganga. Í því sambandi ræddi hann við hv. 1. þm. Norðurl. e. og mig úr Framsfl. og bað okkur að athuga það sérstaklega í okkar flokki, sem við og gerðum og fengum fyrir því fylgi í þingflokknum, að flokkurinn mundi greiða götu málsins í gegnum þingið í fyrravetur, þannig að hann mundi ekki flytja við það brtt. eða gera á því stigi þær athugasemdir, sem hann mundi að öðrum kosti hafa gert, til þess að málið næði fram að ganga. Þó fór svo á þessu þingi, að málið var ekki afgreitt og hefur ekki verið sýnt á því hv. Alþ., er nú situr að störfum.
Í fjárlagaræðu hæstv. fjmrh. á s.l. hausti tók ég eftir því, að hann boðaði, að þetta mál mundi koma fram á þessu þingi í einhverri mynd. Nú hefur það komið fram í svörum hæstv. ráðh. við þessari fsp. okkar, að hann dregur það í efa, að ég held, að málið komi fram í þeirri mynd, sem það var lagt fyrir hv. Alþ. í fyrra. Og ég verð að segja, að ég harma það, ef svo er, og vildi gjarnan vona, að ég hefði misskilið það. Ég held, að það verði svo fyrir fleiri sveitarstjórnarmönnum, að þeim finnist miður farið, ef málið verður ekki lagt fram í þeirri mynd, sem það var gert hér í fyrra, sem sérstakur lánasjóður fyrir sveitarfélögin. Ég held, að hæstv. fyrrv. fjmrh., sem var kunnugur sveitarstjórnarmálum sem fyrrv. borgarstjóri í Reykjavík, hafi áttað sig alveg rétt á eðli þessa máls og því hafi hann borið þetta frv. fram.
Ég held, að það sé öllum ljóst, að þó að settur yrði upp lánasjóður, mundi hann ekki verða við rískum allra sveitarfélaga landsins um að lána þeim til allra hugsanlegra framkvæmda. Það dettur ekki þeim mönnum í hug, sem fyrir sveitarfélögum standa. Hitt eru þeir vissir um, að lánasjóðurinn mundi greiða úr þessum málum og það mundi komast betra skipulag á lánaþörf sveitarfélaganna með stofnun lánasjóðsins. Ég er sannfærður um, að hann er spor í rétta átt, og ég treysti því, að hæstv. ríkisstj. virði svo mikils ályktun, er ráðstefna sveitarfélaganna um fjármál gerði í dag um þetta efni, að hann hlutist til um, að þetta mál nái fram að ganga á yfirstandandi Alþingi.