16.12.1965
Neðri deild: 33. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (333)
97. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1966
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Frv. þetta er flutt í samræmi við venju um það að fresta samkomudegi reglulegs þings fram á haustið. Hefur svo verið nú um allmörg ár, og fannst mér eðlilegast að leggja frv. fram, um leið og tekin væri ákvörðun um að fresta fundum þingsins nú fram yfir áramót, en till. er komin fram um að fresta fram í febrúar.
Ég sé ekki ástæðu til þess, að þetta frv. fari til n., það mun ekki vera venja. Hvort menn vilja afgreiða það nú eða eftir áramótin, skiptir í sjálfu sér ekki neinu höfuðmáli, en eðlilegast er að afgreiða það skjótlega, svo að það þvælist þá ekki fyrir seinna. Á hitt vildi ég svo benda, hvort það væri ef til vill ekki eðlilegra að breyta einfaldlega ákvæðum 35. gr. stjórnarskrárinnar, sem segir:
„Reglulegt Alþingi skal saman koma ár hvert hinn 15. dag febrúarmánaðar eða næsta virkan dag, ef helgidagur er, hafi forseti lýðveldisins ekki tiltekið annan samkomudag fyrr á árinu. Breyta má þessu með lögum.“
Það má breyta þessu í eitt skipti fyrir öll eða svo lengi sem menn vilja með einföldum lögum, í stað þess að vera með lagabreytingu á hverju ári. Mætti segja, að það væri eðlilegra að setja um þetta almennt ákvæði um, að þingið kæmi saman 10. okt., og reynslan hefur skorið úr um, að það er miklu heppilegra, miðað við nútímahætti. Ég hef þó ekki lagt það til á þessu stigi málsins, að þessi frambúðarbreyting yrði gerð. Mér sýnist það í raun og veru eðlilegri háttur en að vera með þessa breytingu a hverju ári, en eins og er, legg ég til, að frv. fái afgreiðslu án þess að ganga í gegnum nefnd.