28.03.1966
Neðri deild: 60. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (527)
122. mál, skógrækt
Skúli Guðmundsson:
Mér er sagt, að búnaðarþing nýafstaðið hafi fjallað um þetta mál og samþ. þar ályktun þess efnis, að rétt væri að vísa þessu máli frá. Hins vegar mun búnaðarþing vilja fá ákvæði um stuðning við skjólbelti inn í jarðræktarlögin. Og með tilvísun til þessarar afstöðu búnaðarþings segi ég nei.