03.12.1965
Sameinað þing: 16. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í B-deild Alþingistíðinda. (66)
1. mál, fjárlög 1966
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Þessi till. er um að fella niður einn lið í 2. gr., farmiðaskatt. Nú eru engin lög um slíkan skatt, og frv. um hann hefur einu sinni ekki verið lagt fyrir Alþ. og verður vonandi aldrei, svo að ég lít á þetta sem sjálfsagða leiðréttingu á frv. að fella þetta niður. Mér skilst, að þetta sé komið inn þarna fyrir einhverja vangá. Þess vegna segi ég já.