11.10.1965
Sameinað þing: 0. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (7)

Rannsókn kjörbréfs

Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):

Þá liggur fyrir að rannsaka kjörbréf Inga R. Helgasonar. Það er 2. kjördeild sem fær það verkefni, og ég vildi mælast til þess, að Alfreð Gíslason kallaði nefndina saman í efrideildarsalnum. Meðan kjörbréfið verður athugað, verður hlé á fundi. Fundinum er frestað í bili. — [Fundarhlé.]