08.03.1966
Efri deild: 47. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í B-deild Alþingistíðinda. (706)

109. mál, meðferð opinberra mála

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að þakka hv.n. fyrir afgreiðslu málsins. Það er rétt, sem frsm. tók fram, að hér er aðeins um að ræða í sambandi við þetta mál minni háttar opinber mál. En hitt er hins vegar á að líta um leið, að það er ákaflega mikill fjöldi þessara minni háttar mála, sem frv. gæti tekið til og stuðlað a skjótari meðferð þeirra og þá vonandi betri úrlausnum. Ég hef áður gert hv. d. grein fyrir ví, að til undirbúnings er frekari endurskoðun í sambandi við dómsmálameðferðina í landinu. Hins vegar mun hún ekki verða afgr. frá rn. fyr en næsta þing kemur saman og þarf enn töluverðan undirbúning.