26.04.1966
Neðri deild: 78. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (826)

160. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. (Davíð Ólafsson):

Herra forseti. Frv. þetta er komið frá hv. Ed., og fjhn. þessarar hv. d. hefur nú haft það til meðferðar og orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ., en þó hafa sumir nm. skrifað undir með fyrirvara og áskilja sér rétt til þess að fylgja eða flytja brtt.