06.12.1965
Neðri deild: 25. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í B-deild Alþingistíðinda. (85)
2. mál, gjaldaviðauki
Frsm. (Davíð Ólafsson):
Herra forseti. Frv. þessu var vísað til fjhn. Það veitir ríkisstj. heimild til þess að innheimta á árinu 1966 ýmis gjöld með viðauka og er sama eðlis og lög, sem nú gilda um innheimtu þessara sömu gjalda. Hefur raunar verið svo um nokkur undanfarin ár, að þessi gjöld hafa verið innheimt með þeim viðaukum, sem tilgreindir eru í frv. Fjhn. hefur yfirfarið frv., og í nál. á þskj. 123 mælir n. með því, að frv. verði samþ. óbreytt.