29.04.1966
Neðri deild: 81. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (952)
187. mál, lántaka vegna framkvæmdaáætlunar 1966
Frsm. (Davíð Ólafsson):
Þetta frv. er komið frá hv. Ed. og er tvíþætt, annars vega heimild til lántöku vegna framkvæmdaáætluna og hins vegar heimild fyrir ríkissjóð að gefa út ríkisskuldabréf og spariskírteini með verðtryggingu.
Fjhn. hefur farið yfir þetta frv., og eins og fram kemur í nál. á þskj. 634, mæli n. með því, að frv. verði samþ., en 3 nm. undirrita þó með fyrirvara og einhverjir þeirra munu hafa ætlað að flytja brtt. við frv., sem ekki hefur verið útbýtt enn.